Price description
Garibaldi les úr bók sinni Þagnafár sem kom út í vor en þar skáldar hann sögu föður síns sem fæddist í Hælavík á Hornströndum. Ljóðin fjalla um áföll sem faðirinn lendir í sem drengur og fylgja honum alla ævi og valda honum iðulega búsifjum. Ljóðin sýna líf föðurins og flótta hans frá þessum áföllum sem brjótast fram þegar hann jarðsetur yngsta son sinn. Ljóðin lýsa magnþrungnum harmi og tekur myndmálið mið af hrikalegri náttúru á Hornströndum þar sem hann ólst upp. Þar lenti hann í miklu áfalli sem lagðist mjög á sál hans ekki síst vegna algerrar þöggunar.
Garibaldi hefur gefið út ellefu ljóðabækur. Handrit hans að Sjónbaugum hlaut viðurkenningu Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar árið 2000.