Price description
Ókeypis aðgangur
Í tilefni af Barnamenningarhátíðinni Púkanum býður Byggðasafn Vestfjarða börnum á grunnskólaaldri að koma í Krambúðina og læra að hekla dúllur með Dóru í Klæðakoti. Allur efniviður er á staðnum og ókeypis fyrir þátttakendur.
Börnin geta annaðhvort komið þriðjudaginn 28. apríl eða fimmtudaginn 30. apríl eða komið í bæði skiptin og lært að tengja dúllurnar saman. Foreldrar eru velkomnir með til að aðstoða.
Núna í vor verður opnuð sýning í Krambúðinni sem er tileinkuð Guðrúnu Vigfúsdóttur og vefstofu hennar. Hluti af sýningunni er helgaður Húsmæðraskólanum Ósk en fyrstu skref í átt að stofnun Húsmæðraskóla voru einmitt stigin með hannyrðakennslu fyrir tæpum 120 árum.