Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Kvikmyndatónleikar: Arctic Mirage - Echo from the North

July 4 at 20:30

Price description

3.000 kr.

Arctic Mirage – Echo from the North
Kvikmynd með lifandi tónlist
Miðasala á Glaze.is

Hljóðlistamaðurinn Tristan Visser hefur heillast af söng búrhvalsins. Þessi hvalategund er þekkt fyrir spuna- og djasslíkar raddbeitingar sínar. Með þann innblástur í farteskinu að þótt hnúfubakar séu „klassískir tónlistarmenn“ hafsins, þá séu búrhvalirnir „djasslistamenn djúpsins“, lagði Tristan upp í ferð til að fanga tónlist þeirra.

Í félagi við kvikmyndagerðarmanninn Jeroen van de Bovenkamp fór Tristan af stað í metnaðarfullan leiðangur um borð í seglskipinu Mae West undir stjórn hollenska landkönnuðarins André Speet. Leiðangurinn sigldi hina goðsagnakenndu Norðvesturleið frá Grænlandi til Alaska. Í tvo mánuði á hafi úti elta þeir draum á sjóndeildarhringnum – norðurskautasýn, bæði í bókstaflegum og táknrænum skilningi. Þessi sýn verður að táknmynd fyrir leitina að einhverju fögru sem er alltaf rétt utan seilingar.

Ferðin mótast af breytilegu ljósi, hreyfanlegum ís og óvæntum kynnum, sérstaklega við inúíta og hefðbundna tónlistarmenn sem veita nýja sýn á það hvernig hægt er að hlusta á heim norðurslóða. Þegar líður á leiðangurinn verður ljóst að draumurinn snýst ekki aðeins um söng búrhvalsins, heldur einnig um þau mannlegu tengsl sem myndast á leiðinni.

Í sérstakri kynningaruppsetningu er Arctic Mirage – Echo from the North sýnd ásamt lifandi tónlistarflutningi eftir Tristan, þar sem vettvangsupptökur, hvalasöngur og lifandi hljóðfæri sameinast í sjónræna og hljóðræna upplifun.