Price description
Einkasýning Steinvarar Ingibjargar Gísladóttur Källman opnar í Safnahúsinu Ísafirði 18. september kl. 18:00. Næmleiki og listrænir þræðir hafa fylgt Steinvöru alla tíð. Til að heila erfiða reynslu og sorg sem tengdust Ísafirði á hennar yngri árum, hóf Steina að sauma út myndir af byggingum og verkum sem tengjast Ísafirði. Segist hún með því gefa nafni sínu og uppvaxtarárum nýja liti og bæta sína eigin tenginu við Ísafjörð. Heilunarmáttur handverks og lista fær því hér nýja merkingu, upphaf og lokun, með hverjum þræði og hverju spori.
Steinvör Ingibjörg Gísladóttir Källman er fædd á Ísafirði árið 1970 og ólst þar upp. Hún hefur verið búsett erlendis frá árinu 1994, fyrst í Svíþjóð og frá árinu 2010 í Danmörku. Sköpun og handverk hafa fylgt Steinu frá unga aldri. Hún kynntist útsaumi sem barn og hefur síðan unnið með fjölbreyttar skapandi aðferðir, meðal annars prjón, hekl, skartgripagerð, myndlist, smásögur og ljóð. Hún er sjálflærð að mestu í útsaumslistinni en hefur sótt ýmis listanámskeið og fróðleik úr bókum í gegnum tíðina. Hún notar blandaða tækni í verkum sínum þar sem hún málar grunn í sum verkanna auk þess að sauma út margvíslegar tegundir útsaumsspora þar sem hún leggur áherslu á nýja gerð af útsaumsspori í hvert verk. Steinu er umhugað um umhverfisvernd og gaman er að geta þess að hluti af efniviði hennar eru gamlir saumaþræðir sem henni hafa borist frá eldri konum á Ísafirði.
Árið 2025 tók Steinvör þátt í samsýningum í Danmörku þar sem útsaumsverk byggð á sögum H.C. Andersen voru sýnd. Verk hennar byggði á sögunni Den gamle gadelygte (Gamli götulampinn). Sýningin ferðaðist víða um Danmörku og bók var gefin út í tengslum við verkefnið.