Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Furðuverur í fjörunni – vísinda- og listasmiðja fyrir börn í 3.-5. bekk

May 2 at 10:00-14:00

Hvaða dýr búa við ströndina? Hvað borða krabbar?
Furðuverur í fjörunni er spennandi vísinda- og listasmiðja sem haldin er af Menningarmiðstöðinni Edinborg og Háskólasetri Vestfjarða, laugardaginn 2. maí 2026 kl. 10-14.

Hvaða dýr búa við ströndina? Hvað borða krabbar?
Furðuverur í fjörunni er spennandi vísinda- og listasmiðja sem haldin er af Menningarmiðstöðinni Edinborg og Háskólasetri Vestfjarða, laugardaginn 2. maí 2026 kl. 10-14.
Furðuverur í fjörunni er hluti af barnamenningarhátíðinni Púkanum og er ætlaður nemendum í 3.-5. bekk grunnskóla.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrir fram.

Skráningarform

Dagskrá:

10:00 Mæting í fjöruna við Neðstakaupstað, hjá Sæfara (sjá á korti)
Fræðsla um hvað leynist í hafinu og hvernig það er rannsakað. Krabbagildrur sóttar, innihald þeirra skoðað og skráð.
11:00 Haldið í Edinborgarhúsið þar sem fer fram nánari fræðsla um lífverurnar sem fundust í gildrunum og búsvæði þeirra.
11:30 Nestispása: Þátttakendur þurfa að taka með sér nesti.
12:00-13:30/14:00 Listasmiðja þar sem þátttakendur setja sig inn í búsvæði og aðstæður krabbanna. Nemendur vinna með þara og annað fundið efni úr fjöruni, auk lita og málningar.
Leiðbeinendur eru Una Lilja Erludóttir, nemi í haf- og strandsvæðistjórnun hjá Háskólasetrinu, og myndlistamaðurinn Þorgils Óttarr Erlingsson.

Verkefnið er styrkt af verkefnastyrkjum Púkans.