12:00-12:35 Barnaskemmtun Kómedíuleikhússins: Iðunn og eplin. Sýnt verður í samkomusal á hjúkrunarheimilinu Eyri. Andlistmálun einnig í boði á sama stað frá 11:40.
13:15 Skrúðganga frá Silfurtorgi upp á Eyrartún
13:30-16:00 Hátíðardagskrá á Eyrartúni
- Lúðrasveitin leikur fjörug lög
- Hátíðarræða — Ólafur Guðsteinn Kristjánsson
- Hátíðarkór — Stjórnandi Tuuli Rähni
- Ávarp fjallkonu
- Hoppukastalar, andlitsmálun, karamelluregn, hestbak fyrir börn, sölutjöld körfuknattleiksdeildar Vestra.
14:30-17:00 Kökuhlaðborð til styrktar meistaraflokki kvenna í knattspyrnu á Logni.
15:30 Kassabílarallý á hátíðarsvæði
- Nánari upplýsingar og skráning á Facebook-viðburði
16:00 Opnun: Framtíðarfortíð í Safnahúsinu á Ísafirði
- Framtíðarfortíð Listasafns Íslands og Listasafns Ísafjarðar er fyrsta sýningin í röð sýninga sem marka samvinnu Listasafns Íslands og sýningarstaða á landsbyggðinni.
Sýningin er haldin til að fagna 80 ára lýðveldisafmæli þjóðarinnar.
17:00 Pikknikk-tónleikar í Blómagarðinum, Austurvelli, í samstarfi við tónlistarhátíðina Við Djúpið.
-
Blönduð dagskrá þekktra laga og frumsamdar tónlistar. Fram koma Svava Rún Steingrímsdóttir, Pétur Ernir Svavarsson og Skúli Mennski. Gestir eru hvattir til að taka tjaldstóla eða teppi með sér.
20:00 Við Djúpið — Opnunarhátíð
- Seiðandi frönsk tónlist frá síðustu öld myndar ramma utan um þrjú spennandi verk núlifandi tónskálda. Þar hljóma flauta, píanó, marimba, víbrafónn og bassaklarínett sundur og saman auk þess sem segulband kemur við sögu. Fram koma: Christine Köhler, flauta, Alexander Vorontsov, píanó, Moritz Wappler, slagverk, Sem R. A. Wendt, bassaklarínett.
Nánari upplýsingar
Einnig er vakin athygli á glæsilegri dagskrá á Hrafnseyri 16. og 17. júní. Nánar á www.hrafnseyri.is.