Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Hinn ísfirski Simson

August 21

Ísleikhúsið er með leiksýningu um hinn magnaða þúsundþjalasmið Martinus Simson. Leikritið rekur ævi hans og fylgir honum öll æviskeiðin. Sviðslistahópurinn Ísleikhúsið setur upp sýninguna og er þetta þeirra önnur uppfærsla. Leikstjórn er í höndum Rakelar Ýrar Stefánsdóttir leikkonu.

Verkefnið er samstarf við Skógræktarfélag Ísfirðinga og erum við með sýningunni að fagna 100 ára afmæli Simsongarðsins og heiðra upprunna félgsins. Verkefnið fékk styrk bæði frá menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar og frá uppbyggingarsjóði Vestfjarða. Ef þig langar að skoða eða vita meira um sýninguna þá erum við búnar að deila öllu á miðlunum okkar @isleikhusid á instagram og Ísleikhúsið á facebook.

Sýnt er í Simsongarðinum í Tunguskógi og eru áhorfendur hvattir til þess að taka með eigin stóla. Sýningar tími er um 40 mínútur.

Miðasala á www.svid.is