Price description
Leikritið er krassandi og áhrifamikið verk byggt á mögnuðum og dagsönnum draugasögum úr Dýrafirði. Skyggnst verður inn í handanheima þar sem einhverjir magnaðustu draugar fjarðarins koma við sögu. Fremst í flokki er Gunnhildur, sem gekk aftur lengur en flestir aðrir draugar landsins, nærri eina öld.
Sýningin fer fram á sjálfum söguslóðunum í leikhúsinu í Haukadal í Dýrafirði, þar sem draugagangur hefur lengi verið sagður hvað mestur og magnaðastur á Vestfjörðum.
Hér er á ferðinni óvænt og áhrifamikil leiksýning sem mun án efa veita gestum viðeigandi hroll.
Höfundur og leikari: Elfar Logi Hannesson
Búningar: Sunnefa Elfarsdóttir
Lýsing: Sigurvald Ívar Helgason
Leikmynd og leikstjórn: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Vertu viðbúin(n) ógleymanlegri kvöldstund á söguslóðum drauganna.