Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Prinsinn í Edinborgarhúsinu 3. maí

3. maí kl. 20:00

Upplýsingar um verð

5.900

Þjóðleikhúsið frumsýnir Prinsinn, í samstarfi við Frystiklefann á Rifi

  • Í fyrsta sinn sem Þjóðleikhúsið frumsýnir leikverk á Rifi.
  • Verkið verður sýnt víða um land áður en sýningar hefjast í Þjóðleikhúsinu í haust.
  • Hjartnæmt og fyndið nýtt íslenskt leikrit, byggt á sönnum atburðum.
  • Hvernig getur maður orðið pabbi sautján ára, og mamman bara sextán?

Miðvikudaginn 27. apríl frumsýnir Þjóðleikhúsið, í samstarfi við Frystiklefann á Rifi, nýtt íslenskt leikrit, Prinsinn, eftir Maríu Reyndal og Kára Viðarsson, byggt á sönnum atburðum. Verkið er byggt á reynslu Kára sem horfðist í augu við það sautján ára gamall að eiga von á barni. En hversu áreiðanlegt vitni er maður í sinni eigin sögu? Er hægt að muna hlutina rétt? María Reyndal leikstýrir verkinu, en auk Kára leika þau Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), Sólveig Guðmundsdóttir og Birna Pétursdóttir í sýningunni. Frumsýnt verður á Rifi og í framhaldinu verður sýnt víða um land.

Prinsinn er alveg örugglega langbesta sjoppan undir Jökli, og það er þar sem hlutirnir gerast, að nóttu sem degi – sérstaklega ef maður vinnur í sjoppunni og er með lyklana!

Í verkinu kynnumst við manni á fertugsaldri sem bíður í ofvæni eftir því að barn hans komi í heiminn. Eftirvænting og kvíði takast á í huga hans, og atburðir sem áttu sér stað tveimur áratugum fyrr fara að sækja á hann: 17 ára menntaskólastrákur er staddur á Laugaveginum ásamt vini sínum þegar síminn hringir. Sæta stelpan sem vinnur á Prinsinum er í símanum. „Ég er ólétt. Þú ert að verða pabbi.“ Hvernig getur maður orðið pabbi sautján ára, og mamman bara sextán? Er framtíðin í rúst?

Hjartnæmt og fyndið nýtt íslenskt leikrit, sem talar beint til okkar.

Miðasala

Leikferð um landið
Alls verður Prinsinn sýndur á sjö stöðum víðs vegar um landið áður en sýningar hefjast í Þjóðleikhúsinu í haust. Miðasala er í fullum gangi á leikhusid.is.

Höfundar
María Reyndal og Kári Viðarsson

Leikstjóri
María Reyndal

Leikmynd
Guðný Hrund Sigurðardóttir og Egill Ingibergsson

Búningar
Guðný Hrund Sigurðardóttir

Tónlist
Úlfur Eldjárn

Hljóðhönnun
Úlfur Eldjárn
Ásta Jónína Arnardóttir

Lýsing
Jóhann Friðrik Ágústsson


Nánar um sýninguna:
https://leikhusid.is/syningar/prinsinn/

GPS punktar

N66° 4' 15.775" W23° 7' 16.735"

Staðsetning

Edinborgarhúsið

Sími