Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ögurball

16. júlí kl. 20:00-23:00
Hið víðfræga Ögurball verður haldið 16. júlí næstkomandi
Ögurhátíðin byrjar á föstudeginum 15. júlí og er pökkuð dagskrá fram á sunnudag.
„Einu sinni mætt getur ekki hætt“.
Unnendur sveitaballa bíða í ofvæni eftir einu vinsælasta og elsta sveitaballi Vestfjarða, Ögurballinu fræga en það fer fram laugardagskvöldið 16. Júlí
Rómantíkin, gleðin og sveitaballasjarminn sem svífur yfir Ögurballinu er löngu orðin landsfrægt, dansgólfið dúar þegar það fyllist og rababaragrautur með rjóma sem er borinn fram fyrir ballgesti í danspásum. Ein af hefðunum sem Ögursystkinin halda fast í er hinn margumtaliði rababaragrautur með rjóma.
Rababaragrauturinn hefur ávallt verið hluti af ballinu en fólk sem kom ýmist siglandi, ríðandi eða gangandi á ballið fékk rababaragraut til að fá næga orku til að koma sér heim eftir ballið.
Stuðbandið Halli og Þórunn sjá um að skemmta fólki á ballinu. „Þau hafa spilað þarna síðan við tókum við þessu og eru æviráðin. “Þau taka þó pásu og það er misjafnt hver skemmtir í pásum.“
 
Allt innifalið í tjaldsvæðagjaldinu. Þrír dagar af skemmtilegum viðburðum.

GPS punktar

N66° 0' 23.914" W22° 38' 39.722"

Staðsetning

Ögur