Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Þér er boðið í afmæli

7. apríl kl. 15:00

Þann 30 mars sl. voru 90 ár frá stofnun Björgunarsveitarinnar Tinda í Hnífsdal. Að því tilefni langar okkur til að bjóða í afmælisveislu sunnudaginn 7. apríl nk. kl. 15:00 í Félagsheimilinu í Hnífsdal. Byrjað verður á formlegri dagskrá, í framhaldi að því verður boðið upp á kaffi og með því, það verður einnig hægt að spreyta sig á allskonar æfingum, skoða aðstöðuna okkar og fara í kassaklifur.