Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Siggi Björns og Franziska Günther á Vagninum

15. júní kl. 21:00-23:30

Upplýsingar um verð

3500 kr.

Siggi Björns og Franziska Günther halda tónleika á Vagni allra landsmanna sunnudagskvöldið 15. júní.

Eldhús Vagnsins verður opið og tilvalið að koma snemma og fá sér í gogginn áður en þau skötuhjúin fara í gang.

Siggi og Franziska eru búin að vera í stanslausu spileríi í Þýskalandi síðan í byrjun árs og eru því eiginlega í fríi á landinu, en ákváðu þó að gera þessu eina tónleika á meðan á dvölinni stendur. Á prógramminu eru þeirra eigin lög, í bland við nokkra húsganga. Mátulega sannar lygasögur verða svo sagðar á milli laga. Franziska er með nýtt albúm í farteskinu, útgáfa sem var tilnefnd til verðlauna á síðasta ári í Þýskalandi. Tveir vestfirðskir undirleikarar eru á þessari plötu, Valdimar Olgeirsson bassaleikari úr Bolungarvík, og Magnús Björnsson, sonur Sigga. Þau munu fara um víðan völl í prógramminu með það sem höfuðatriði að skemmta fólki.

Miðasala verður við dyrnar, aðgangseyrir 3.500 krónur.