Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sif Margrét Tulinius og Edda Erlendsdóttir – tónleikar í Hömrum

22. september kl. 20:00-21:00

Sif Margrét Tulinius og Edda Erlendsdóttir – tónleikar í Hömrum 22. september kl. 20.
Frönsk rómantík og impressionismi – stefnumót franskra kventónskálda við Ravel og Debussy
Þessi efnisskrá með franskri tónlist frá árinu 1867 til 1927 varpar ljósi á mjög mikilvægt umbreytingartímabil í sögu vestrænnar tónlistar sem átti ekki síst rætur sínar að rekja til franska impressionismans. Áhrifin voru djúpstæð og gætir þeirra enn þann dag í dag.

Mikilvægi kventónskálda í tónlistarsögunni er sífellt að koma betur í ljós og á þessum tónleikum er teflt fram tveimur frönskum kventónskáldum, Pauline Viardot og Lili Boulanger, ásamt þeim Ravel og Debussy, tveimur helstu tónskáldum franskrar tónlistar og fulltrúar þeirrar stefnu sem oft er kennd við impressionisma í tónlist.

Nánari upplýsingar um dagskrá eru á vef Tónlistarskóla Ísafjarðar.