Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Samansafn: Listasmiðja fyrir unglingastig grunnskóla hjá Listasafni Ísafjarðar

28.-29. október

Elísabet Anna Kristjánsdóttir og Sigrún Gyða Sveinsdóttir eru listamenn haustsýningar Listasafns Ísafjarðar; DREGIN LÍNA og í tengslum við hana bjóða þær upp á listasmiðju fyrir unglingastig laugardaginn 28. október og sunnudaginn 29. október kl. 13:00-16:00.

Í listasmiðjunni leggja listamennirnir áherslu á skapandi hugsun og persónulega tjáningu þar sem nemendur eru hvattir til að gera tilraunir og kynnast nýjum efnivið. Unnið verður með ólíkar aðferðir við myndsköpun og hljóðlist, innblásið af verkum listamannanna á sýningu safnsins.