Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Safnahúsið á Ísafirði: Opnun tveggja sýninga

19. ágúst kl. 14:00-15:00

// English below //
OPNUN: Solander 250: Bréf frá Íslandi og Paradise Lost
19.08 - 09.09 2023
Laugardaginn 19. ágúst kl. 14 bjóðum við ykkur velkomin á opnun tveggja sýninga í sal Listasafns Ísafjarðar á annarri hæð í Safnahúsinu Eyrartúni. Þær eru Solander 250: Bréf frá Íslandi og Paradise Lost – Daniel Solander’s Legacy og eru unnar í samstarfi við sendiráð Svíþjóðar á Íslandi og félagið Íslenska grafík. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Sýningin Solander 250: Bréf frá Íslandi er sett upp til að minnast þess að 2022 eru 250 ár liðin frá fyrsta erlenda vísindaleiðangrinum til Íslands, 1772. Með í þeirri för var einn af lærisveinum hins heimsþekkta sænska náttúruvísindamanns Carl Linnaeus, sænski náttúrufræðingurinn Daniel Solander. Solander og félagar komu að landi í Hafnarfirði og ferðuðust til Bessastaða, Þingvalla, Geysis, Skálholts og klifu að lokum Heklu, áður en þeir héldu heim á leið. Þeir skrásettu m.a. ýmislegt um náttúru Íslands, menningu, siði og klæðaburð. Tíu íslenskir grafíklistamenn frá Íslenskri grafík túlka á sýningunni þessa atburði og þær breytingar sem hafa átt sér stað á landi og þjóð.
Samtímis verður sýningin Paradise Lost opnuð. Þar sýna 10 listamenn frá Kyrrahafssvæðinu, en Solander var í áhöfn HMS Endeavour í fyrstu ferð Evrópumanna til Ástralíu. Sýningin hefur áður verið sett upp á Nýja-Sjálandi, í Ástralíu og Svíþjóð. Sýningarnar tvær mynda því einstakt samtal Norðurskautsins og Kyrrahafsins í gegnum ferðir Daniel Solanders.
Þátttakendur / Participants
Solander 250: Bréf frá Íslandi: Anna Líndal, Aðalheiður Valgeirsdóttir, Daði Guðbjörnsson, Gíslína Dögg Bjarkadóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Iréne Jensen, Laura Valentino, Soffía Sæmundsdóttir, Valgerður Björnsdóttir og
Viktor Hannesson.
Paradise Lost: Daniel Solander’s Legacy: Sharnae Beardsley Dagmar Dyck, Tabatha Forbes, John McLean, Alexis Neal, Jo Ogier, Jenna Packer, John Pusateri, Lynn Taylor og Michel Tuffery
Aðgangur ókeypis
Listasafn Ísafjarðar hlýtur stuðning Ísafjarðarbæjar

Viðburður á Facebook
///

OPENING: Solander 250: A Letter From Iceland and Paradise Lost
19.08 - 09.09 2023

Ísafjörður Art Museum invites you to attend the opening of the exhibition Solander 250: A Letter From Iceland and the exhibition Paradise Lost - Daniel Solander’s Legacy, Saturday August 19th at 2PM on the second floor of Eyrartún Culture House.
The exhibition Solander 250: A Letter from Iceland is held in remembrance of one of the first foreign scientific expeditions to Iceland, in 1772, i.e., 250 years ago. On this journey was one of Carl von Linné‘s apostles, the Swedish natural scientist Daniel Solander. Among the things Solander and his fellow travellers recorded in Iceland were nature, culture, traditions, and clothing. Ten Icelandic graphic-artists will interpret these events from 1772 and how the nation and the country have changed since then.
Simultaneously the exhibition Paradise Lost - Daniel Solander’s Legacy. will be opened. Solander was the main botanist on the HMS Endeavor on the first European expedition to Australia. The exhibition has already been set up in New Zealand, Australia, and Sweden. The two exhibitions thus form a unique dialogue between the Arctic and the Pacific through Daniel Solander’s travels. The two exhibitions are the collaborative project of the Swedish embassy in Iceland and the Icelandic Printmakers Association.
- Participants -
Solander 250: Bréf frá Íslandi: Anna Líndal, Aðalheiður Valgeirsdóttir, Daði Guðbjörnsson, Gíslína Dögg Bjarkadóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Iréne Jensen, Laura Valentino, Soffía Sæmundsdóttir, Valgerður Björnsdóttir og
Viktor Hannesson.
Paradise Lost: Daniel Solander’s Legacy: Sharnae Beardsley Dagmar Dyck, Tabatha Forbes, John McLean, Alexis Neal, Jo Ogier, Jenna Packer, John Pusateri, Lynn Taylor og Michel Tuffery

Free entry
Ísafjörður Art Museum is funded by Ísafjarðarbær

Facebook event