Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Miðnæturtónleikar Bríetar á Vagninum

29. mars kl. 23:45

Í fyrra mætti Bríet á Vagninn og hélt miðnæturtónleika við gríðarlega góðar undirtektir og stappfullt hús.

Nú að ári liðnu ætlar hún að endurtaka leikinn. Bríet byrjar að spila um miðnætti og ætlar að dansa og syngja með fólkinu inn í nóttina.

Hún mætir með stórvalaliði íslenska tónlistarbransans, þeim Magnúsi Jóhanni hljómborðsleikara og Bergi Einari trommara.

Ekki láta ykkur vanta, dansið með Bríeti inn í páskafríið.

Forsala á TIX