Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Málum regnbogann á Silfurtorgi!

17. maí kl. 09:00-16:00

Regnboginn sem hefur verið á Silfurtorgi undanfarin ár verður málaður upp á nýtt nú á laugardaginn, 17. maí 

17. maí er einmitt alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks, einnig nefndur IDAHOBIT (International Day Against Homophobia, Biphobia, Intersex Discrimination and Transphobia) og  í ár verður regnboginn með aðeins öðru sniði en hingað til, þar sem litum úr fána transfólks verður gert hátt undir höfði. Það er félagið Hinsegin Vestfirðir sem stendur fyrir verkinu, með leyfi og styrk Ísafjarðarbæjar, sem útvegar málninguna.

Öll sem vilja leggja hönd á plóg við að mála á laugardaginn eru velkomin en ráðgert er að hefjast handa klukkan 9.