Tumi Torfason, trompetleikari, tónskáld og tengdarsonur Tjöruhússins kemur með jazzinn vestur á Ísafjörð þessa helgi.
Hér er á ferð glænýtt tríó með þeim Daníeli Helgasyni gítarista og Stefan Schneider trymbli. Hópurinn byggir sína tónlistarsköpun á djúpri hlustun og þeirri kyrrlátu spennu sem henni fylgir. Áferðir, laglínubrot og taktfastar samræður blandast saman í bilinu milli spuna og tónsmíðar. Þrjár raddir í einu samtali – sem flétta hið óvænta saman í lag.
Tumi Torfason : trompet
Daníel Helgason : rafgítar
Stefan Schneider : trommur
Jazzinn mun duna í Tjöruhúsinu á Ísafirði milli hádegis- og kvöldverðar laugardaginn 24. maí. Leikar hefjast á slaginu 15:30. Sætapláss er takmarkað en nóg er af kaffi, heitu súkkulaði og öðrum veigum.
Í stað aðgangseyris verður opið fyrir frjáls framlög. Góða skemmtun!