Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Jasstónleikar — Hannes Arason Kvartett

22. ágúst kl. 20:00

Upplýsingar um verð

3000 kr.

Djasstrompetleikarinn Hannes Arason hefur undanfarin þrjú ár stundað nám í Stokkhólmi, þar sem hann stofnaði hljómsveitina Hannes Arason Kvartett. Nú fær hann Svíana hingað til landsins og þau ætla að halda tónleika í Bryggjusalnum í Edinborgarhúsinu fimmtudaginn 22. ágúst.

Hannes Arason Kvartett spilar frumsamda, framsækna djasstónlist sem leggur áherslu á samspuna með djúpri hlustun. Hljómsveitin skapar stóra kontrasta með flæðandi dýnamík og þéttskrifuðum útsetningum. Taktfastir rytmar, ómþýðir hljómar og frjáls spuni takast jafnt á í tónlistinni sem kemur sífellt á óvart. Hannes Arason - trompet, flügelhorn Oskar Nöbbelin - píanó Amanda Karström - kontrabassi Filip Öhman - trommur Hannes Arason er upprennandi trompetleikari á íslensku og sænsku tónlistarsenunni. Hann gaf út sína fyrstu plötu, Frífólk, í febrúar 2024, þar sem hann blandaði frjálsum spuna saman við áhrifum frá sænskri og íslenskri þjóðlagatónlist. Í tónlist sinni leggur hann áherslu á frjálsan spuna, tilraunamennsku og samruna mismunandi tónlistarstefna.

Hannes útskrifaðist vorið 2024 með bakkalárgráðu í djasstrompetleik frá Kungl. Musikhögskolan i Stockholm og áður kláraði hann burtfarapróf í rytmískum trompetleik frá Menntaskóla í tónlist.

Fimmtudaginn 22. Ágúst kl 20:00
Bryggjusalur
Miðaverð 3.000 kr
Miðasala við inngang