Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hjörtur Matthías Skúlason: Gras - Any of Many

4. september kl. 16:00-18:00

Fimmtudaginn 4. september kl. 16 opnar sýning Hjartar Matthíasar Skúlasonar Gras – Any of Many í Gallerí Úthverfu. Listamaðurinn verður viðstaddur opnunina og boðið verður uppá léttar veitingar og spjall.
Sýningin Gras - Any of Many býður gestum að kanna þemu sem varpa ljósi á tilveru grasstráa. Hjörtur dregur fram á óhefðbundin hátt myndir af stráum við mismunandi birtuskilyrði og sýnir þau í nýju og einstöku ljósi.

Í huga Hjartar lýsir hver mynd ákveðinni stemningu og stund í tilvist stráa með skírskotun til manneskjunnar. Til að mynda eru strá sem bærast í vindi og teygja sig til himins, hópur fólks með hendur á lofti að fagna. Mörg grasstrá saman - en samt í sundur.

Stráin í verkum Hjartar eru hógvær, næm og brothætt en samt sterk og lifandi. Áreynslulaus áferð og litasamsetning verkanna er afrakstur margra ára æfinga og stúdíu en Hjörtur hélt fyrstu málverkasýningu sína aðeins sautján ára gamall.

Hjörtur ólst upp við það að aðstoða foreldra sína, unga bændur á Vestfjörðum, að búa til ný tún í óspilltri náttúru. Blóðbergið var rifið upp með rótum til að sá nýjum fræjum - grasfræjum sem áttu að mynda tún - en kannski áttu þau heima annars staðar.

Viðfangsefnið endurtekur sig en litasamsetning og áferð breytist. Verk sýningarinnar eru sett upp á þann hátt að þau fljóta saman í eina heild – og mynda samfellu líkt og á filmu - ef áhorfandinn pírir augun kemur hreyfing á myndirnar og litirnir renna saman.

Sýningarstjóri er Hrafnhildur Gissurardóttir.
hrafnhildurster@gmail.com – sími: 761 1099

Hjörtur Matthías Skúlason er fæddur á Patreksfirði 1979 og ólst upp á Rauðasandi í Vesturbyggð. Hann lauk fornámi við Myndlistarskólann í Reykjavík áður en hann hóf nám í Listaháskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 2013 með BA gráðu í vöruhönnun. Sérkenni Hjartar síðastliðin ár eru manngerðir skúlptúrar hans, handsaumaðar dúkkur sem minna okkur á hlutskipti mannsins og tengsl við náttúruna.
Ljósmyndir: Valgarður Gíslason