Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Dimmalimm á páskum

29. mars kl. 14:00-14:40

Barnaleikritið Dimmalimm í Kómedíuleikhúsinu, Haukadal, 29. mars kl. 14:00.

Dimmalimm er án efa eitt ástsælasta ævintýri þjóðarinnar. Sagan er eftir listamanninn Mugg frá Bíldudal. Ævintýrið fjallar um prinsessuna Dimmalimm sem eignast góðan vin sem er stór og fallegur svanur. En einsog í öllum góðum sögum þá gerist eitthvað óvænt og ævintýralegt.

Miðaverð: 2.500. kr
Miðasölusími: 891 7025
Miðasala á netinu midix.is

Leikritið um Dimmalimm var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í mars 2019 og var sýnt aftur og aftur fyrir smekkfullu húsi. Leikurinn hefur verið á fjölunum hér og þar síðan og fengið ævintýralegar viðtökur.
Dimmalimm kynningarmyndband 

Viðburður á Facebook