Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

„Ástin, bjartsýnin og andskotans blaðrið í fólkinu“ - Kvartett Sunnu Gunnlaugs ásamt Marínu Ósk

19. september kl. 20:30-22:00

Upplýsingar um verð

3.500 kr.

Kvartett Sunnu Gunnlaugs ásamt Marínu Ósk kemur fram á tónleikum undir yfirskriftinni „Ástin, bjartsýnin og andskotans blaðrið í fólkinu“ en það er jafnframt titill hljómplötu sem kom út á síðasta ári. Tónleikarnir fara fram í Bryggjusal Edinborgarhússins og hefjast kl. 20:30. Jazzpassi Edinborgarhússins gildir á tónleikana en einnig er hægt að nálgast staka miða á Glaze og við innganginn.

Platan var tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna og Marína var valin söngkona ársins í jazzflokki. Á plötunni eru 7 lög Sunnu við ljóð Jóns úr Vör. Sunna valdi ljóð Jóns sem fjalla um bjartsýnina sem fylgir vorinu, ástina og jú blaðrið í fólkinu. Kvartettinn kom fram á Jazzhátíð Reykjavíkur í fyrra og fékk glimrandi umfjallanir frá gagnrýnendum. Kevin Whitlock frá breska tímaritinu Jazzwise sagði Sunnu án efa meðal bestu píanó-tónskálda á jazzsenunni í dag. Jónas Sen fjallaði um tónleikana á Jazzhátið og lýsti tónlistinni sem „gamaldags - í góðum skilningi“, og töfrandi, ísmeygilega fagurri og sérlega grípandi.

Hljómplatan hefur líka fengið hlýjar viðtökur út í heimi þar sem hún var valin plata vikunnar hjá þýsku útvarpsstöðinni WDR3. Einnig var platan valin af gagnrýnendum á Europe Jazz Media Chart sem er listi yfir áhugaverðar plötur í Evrópu og í nýjasta hefti tímaritsins Jazzthetik er opnuviðtal við Sunnu um verkefnið.

Marína Ósk Þórólfsdóttir syngur, Sunna Gunnlaugs leikur á píanó, Nico Moreaux á kontrabassa og Scott McLemore á trommur.

Þess má geta að einungis eitt lag af albúminu er að finna á streymisveitum (Ástakvæði) en hlusta má á albúmið í heild á bandcamp síðu Sunnu https://sunnagunnlaugs.bandcamp.com/