Fara í efni

Vatnsfjörður við Djúp – aðgengi og miðlun sögu minja

Stutt verkefnalýsing:  Vatnsfjörður við Ísafjarðardjúp er fornt höfuðból og kirkjustaður með minjum frá víkingaöld til 20. aldar. Þar á meðal eru landnámsskáli, bæjarhóll, hringlaga kirkjugarður, Grettisvarða og hjallur á Hjallatanga. Fornleifarannsóknir stóðu yfir 2003–2013, en síðan hefur svæðinu lítið verið sinnt. Á staðnum eru hvorki bílastæði, salerni né merktar gönguleiðir. Gestir leggja á bæjarhlaði ábúenda og ganga óskipulega um minjasvæðið. Markmiðið er að gera Vatnsfjörð að öruggum og aðgengilegum áningarstað allt árið, vernda minjar og gróður fyrir ágangi og miðla sögu staðarins. Verkefnið er unnið í þremur áföngum. Súðavíkurhreppur er landeigandi og ábyrgðaraðili. Sei ehf og Gagarín annast hönnun, í samráði við Fornleifastofnun Íslands og Minjastofnun Íslands.

Helstu verkþættir: Frumhönnun ferðamannastaðar og Frásagnarleið og miðlun sögu staðarins.Tíma- og kostnaðaráætlun fyrir næstu áfanga. Hönnunarbók sem lýsir lausnum í máli og myndum.

Markmið verkefnisins:

  • Öryggi
  • Náttúruvernd
  • Bætt aðstaða
  • Heilsársferðaþjónusta
  • Álagsstýring
  • Bætt upplifun ferðamanna
  • Þjónustunet Vestfjarðaleiðarinnar

Umsjónaraðili/ábyrgðaraðili: Súðavíkurhreppur