Gestakomur á vinsælum áfangastöðum
Gögn um gestakomur gefa yfirsýn yfir hvernig ferðamenn dreifast um landið og hvernig álag á áfangastaði þróast yfir tíma. Þau eru mikilvægur grunnur fyrir skipulag, uppbyggingu og stýringu áfangastaða.
Mælaborðið hér að neðan er frá Ferðamálastofu og byggir á talningum gesta á völdum stöðum um land allt. Á Vestfjörðum eru reglulegar mælingar meðal annars við Látrabjarg og Dynjanda, sem gefa mikilvæga innsýn í þróun á svæðinu.
Hægt er að nota síur í mælaborðinu til að:
- velja landsvæði, t.d. Vestfirði
- skoða ákveðin tímabil