Fara í efni

Stefna um þróun ferðaþjónustu á svæðinu

Framtíðarsýn og markmið

Vestfirðir verða heilsárs áfangastaður þar sem ferðaþjónusta er rekin í sátt við náttúru og samfélag. 

Framtíðarsýn Vestfjarða er að svæðið verði heilsárs áfangastaður þar sem ferðaþjónusta er rekin í sátt við náttúru og samfélag. Uppbygging og þróun fer fram í samræmi við stefnumörkun svæðisins og landsins og byggir á svæðisskipulagi Vestfjarða, Sóknaráætlun Vestfjarða og Ferðamálastefnu ríkisins til 2030.

Áfangastaðaáætlun Vestfjarða tekur mið af þeim stefnum og aðgerðum sem þar eru settar fram. Svæðisskipulag Vestfjarða mótar heildstæða framtíðarsýn fyrir landshlutann til ársins 2050 og leggur grunn að stefnu í atvinnulífi, náttúruvernd og uppbyggingu innviða. Sóknaráætlun Vestfjarða 2025–2029 leggur áherslu á byggðafestu, samlegð menningar og atvinnulífs og eflingu heilsársstarfsemi. Ferðamálastefna ríkisins til 2030 leggur jafnframt áherslu á sjálfbærni, gæði, samhæfingu stjórnsýslu og ábyrga þróun ferðaþjónustu.

Markmið áfangastaðaáætlunar Vestfjarða eru að efla heilsársferðaþjónustu og draga úr árstíðasveiflu, styrkja Vestfjarðaleiðina sem burðarás ferðaþjónustu á svæðinu og tryggja að uppbygging og stýring álags byggi á skipulagi og forsendum svæða. Jafnframt er lögð áhersla á að samhæfa stefnumótun, þróunarverkefni og markaðsstarf og tryggja að ferðaþjónusta styðji við samfélagsauð og byggðafestu í landshlutanum.

Með þessum áherslum fellur áfangastaðaáætlun Vestfjarða að markmiðum ríkisins um sjálfbæra og ábyrga þróun ferðaþjónustu þar sem jafnvægi er á milli nýtingar og verndar náttúru og samfélags.

Tengsl við aðrar áætlanir

Áætlunin er unnin í samræmi við:

Fræðsla til ferðaþjóna og starfsfólks (áherslur)

VEIT EKKI ALVEG