Fara í efni

Á Vestfjörðum eru níu friðlýst svæði og 16 svæði sem metin hafa verið sem mikilvægar náttúruminjar sem Náttúrminjastofnun telur ástæðu til að friðalýsa. Þar ber helst að nefna friðlandið á Hornströndum. Þá eru einnig friðlýst svæði á borð við Látrabjarg, Vatnsfjörð og Flatey á Breiðafirði, auk náttúruvætta eins og Dynjanda og Surtarbrandsgils á Barðaströnd. Auk friðlýstra svæða eru fjölmargar náttúruperlur sem hafa sterka stöðu sem ferðamannastaðir, svo sem Rauðasandur, Drangar á Ströndum og fjölbreytt fuglabjörg og strandlandslag víðs vegar um svæðið.

Vestfirðir eru annað tveggja svæða á Íslandi sem ekki hefur skilgreindan þjóðgarð. Í skýrslu Vestfjarðastofu, Þjóðgarðar á Vestfjörðum, var meðal annars lagt mat á hvaða landssvæði væru hentug til að stofna þjóðgarð eða setja á aðra verndun sem gæti ýtt undir jákvæða byggðaþróun. Í niðurstöðum skýrslunnar kom fram að Dynjandisþjóðgarður væri augljósasti kostur Vestfirðinga til stofnunar þjóðgarðs, sérstaklega hvað varðar stærð, náttúrulega- og menningarlega sérstöðu, fjölda ferðamanna og styrkingu byggðar við Dýrafjörð og í Vesturbyggð.

Breiðafjörður

Breiðafjörður

Breiðafjörður er annar stærsti flói landsins og þekktur fyrir ótal eyjar og sker, víðáttumiklar fjörur og einstakt fugla- og sjávarlíf.

Drangar á Ströndum

Drangar á Ströndum

Drangar á Ströndum eru hluti af víðáttumiklu óbyggðu víðerni á Vestfjörðum þar sem landslag, einangrun og náttúruupplifun hafa mikið verndargildi.

Dynjandi

Dynjandi

Dynjandi í Arnarfirði er eitt þekktasta kennileiti Vestfjarða. Fossinn og umhverfi hans mynda sérstæðan áfangastað þar sem landslag og vatnsföll setja svip sinn á upplifun staðarins.

Flatey

Flatey

Flatey er stærst Vestureyja á Breiðafirði og er þekkt fyrir fjölbreytt fuglalíf, sögulega byggð og sérstætt menningarlandslag.

Hornstrandir

Hornstrandir

Hornstrandir eru eitt stærsta ósnortna víðerni Íslands, þekkt fyrir fuglabjörg, fjölbreytt gróðurfar og menningarminjar fyrri búsetu.

Látrabjarg

Látrabjarg

Látrabjarg er vestasti tangi Íslands og eitt stærsta fuglabjarg Norður-Atlantshafs þar sem milljónir sjófugla verpa á hverju ári.

Surtarbrandsgil

Surtarbrandsgil

Surtarbrandsgil er merkilegt jarðminjasvæði þar sem finna má leifar fornra skóga í jarðlögum og einstaka steingervinga.

Vatnsfjörður

Vatnsfjörður

Vatnsfjörður er friðlýst svæði þar sem landslag, náttúra og aðgengi mynda sterka heild og vinsælan áfangastað á sunnanverðum Vestfjörðum.