Til að leggja grunn að stefnumótun í ferðaþjónustu er mikilvægt að byggja á traustum upplýsingum um stöðu greinarinnar. Hér að neðan er sett fram samantekt á helstu lykiltölum sem lýsa umfangi ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Gögnin byggja á nýjustu upplýsingum sem tiltækar eru frá opinberum gagnasöfnum og samantektum sem unnar hafa verið í tengslum við áfangastaðaáætlunina. Markmiðið er að veita skýra stöðumynd af ferðaþjónustu á svæðinu og setja fram sameiginlegan grunn til að styðja við greiningu, stefnumótun og forgangsröðun verkefna í áætluninni.
