Markaðsáherslur Vestfjarða byggja á sérstöðu svæðisins, heildrænni sýn Vestfjarðaleiðarinnar og skýrum vilja heimamanna til að efla ferðaþjónustu allt árið. Áherslurnar taka mið af stefnu svæðisskipulags Vestfjarða og Sóknaráætlunar Vestfjarða, þar sem lögð er áhersla á sjálfbæra þróun ferðaþjónustu, dreifingu ferðamanna og eflingu heilsársstarfsemi.
Markaðsáherslurnar eru leiðarljós við mótun þróunarverkefna, markaðsstarfs og samstarfs innan ferðaþjónustunnar. Þær endurspegla jafnvægi milli náttúru, samfélags og atvinnuþróunar og miða að því að styrkja Vestfirði sem heildstæðan og aðgengilegan áfangastað.
Vestfjarðaleiðin – heildræn frásögn svæðisins
Vestfjarðaleiðin er meginverkefni markaðs- og þróunarstarfs á Vestfjörðum. Hún sameinar náttúru, menningu og samfélag svæðisins í eina heildstæða frásögn, styrkir ímynd og sérstöðu Vestfjarða.
Leiðin gegnir einnig mikilvægu hlutverki í að dreifa ferðamönnum um svæðið og stuðla að jafnvægi í heimsóknum á áfangastaði. Markaðsstarf, vöruþróun og upplýsingagjöf eru því samræmd við Vestfjarðaleiðina þannig að upplifun gesta endurspegli gildi svæðisins og fjölbreytileika Vestfjarða.
Lykilmarkaðir
Gögn um gistinætur sýna að Vestfirðir sækja gesti frá fjölbreyttum mörkuðum, þar sem Evrópa er stærsti upprunamarkaðurinn. Þýskaland er stærsti erlendi markaðurinn, en einnig koma margir gestir frá Frakklandi, Bandaríkjunum, Hollandi og Sviss. Aðrir mikilvægir markaðir eru meðal annars Bretland, Ítalía, Spánn og Kanada.
Íslendingar eru jafnframt stór og mikilvægur markhópur ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Markaðsstarf tekur því mið af bæði innlendum og erlendum gestum og leggur áherslu á að kynna Vestfirði sem áhugaverðan áfangastað allt árið.
Markaðssetning Vestfjarða er unnin í samstarfi við ferðaþjónustuaðila á svæðinu og í samvinnu við Íslandsstofu / Promote Iceland, með það að markmiði að styrkja sýnileika svæðisins á alþjóðlegum mörkuðum.
Fjölbreytt og sjálfbær ferðaþjónusta
Vestfirðir bjóða upp á einstaka upplifun þar sem stórbrotin náttúra, kyrrð og sterk tenging við menningu og samfélag skapa grundvöll að verðmætri og sjálfbærri ferðaþjónustu. Svæðið hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir sérstöðu sína, frá Lonely Planet, sem styrkir ímynd Vestfjarða sem áfangastaðar sem byggir á gæðum og ábyrgri nýtingu náttúru.
Á Vestfjörðum felast fjölmörg tækifæri til áframhaldandi þróunar ferðaþjónustu sem byggir á sérstöðu svæðisins — útivist í stórbrotinni náttúru, menningu og sögum samfélaganna. Með markvissri vöruþróun og nýsköpun má skapa aukin verðmæti, lengja dvöl gesta og styrkja atvinnulíf og byggðir á svæðinu.
Lögð er áhersla á ábyrgð í ferðaþjónustu og öflugt samstarf fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana um heildstæða þróun áfangastaðarins, þar sem sjálfbær nýting auðlinda og jákvæð áhrif á samfélag eru leiðarljós.
Skemmtiferðaskip og dreifing ferðamanna
Móttaka skemmtiferðaskipa hefur verið mikilvægur þáttur í ferðaþjónustu á Vestfjörðum og hefur stutt við uppbyggingu þjónustu og afþreyingar á svæðinu. Komur skemmtiferðaskipa skapa tækifæri til að dreifa ferðamönnum til fleiri staða og styðja þannig við ferðaþjónustu í fleiri byggðarlögum.
Í svæðisskipulagi Vestfjarða er jafnframt lögð áhersla á að mótuð verði samræmd stefna um móttöku skemmtiferðaskipa á svæðinu, í samstarfi við hafnir, sveitarfélög og fyrirtæki.
Viðburðir og menning
Viðburðir gegna mikilvægu hlutverki í ferðaþjónustu á Vestfjörðum og stuðla að aukinni sýnileika svæðisins og lengingu ferðamannatímabils. Menningar- og tónlistarviðburðir á borð við Aldrei fór ég suður og Skjaldborg kvikmyndahátíðina hafa skapað sér sterka stöðu og draga að gesti bæði innanlands og erlendis.
Markaðsstarf Vestfjarða leggur áherslu á að efla sýnileika menningar, lista og viðburða og tengja þá við heildstæða upplifun á svæðinu.
Lenging ferðamannatímabils
Á samráðsfundum við íbúa og hagaðila kom skýrt fram vilji til að efla ferðaþjónustu utan háannatíma. Lenging ferðamannatímabilsins er því eitt af lykilviðfangsefnum í markaðs- og þróunarstarfi svæðisins.
Áhersla verður lögð á þróun heilsársafþreyingar, vetrarferða, hópaferða og markaðsstarfs sem sýnir að Vestfirðir eru aðgengilegir og eftirsóknarverðir áfangastaður allt árið.