Þróunarverkefni
Þróunarverkefni eru lykilþáttur í framkvæmd áfangastaðaáætlunar Vestfjarða og tengja saman stefnu, markmið og aðgerðir í þróun ferðaþjónustu á svæðinu. Verkefnin miða að því að styrkja umgjörð greinarinnar, efla samstarf og bæta gæði upplifunar fyrir gesti, á sama tíma og tekið er mið af náttúru, samfélagi og atvinnuþróun landshlutans.
Ólíkt uppbyggingarverkefnum sem snúa að einstökum áfangastöðum beinast þróunarverkefni að heildarþróun ferðaþjónustu á svæðinu. Þau stuðla að samræmdri stefnumótun, vöruþróun, markaðsstarfi og fræðslu og styðja þannig við áframhaldandi uppbyggingu ferðaþjónustu á Vestfjörðum.
Þróunarverkefnin byggja á áherslum svæðisskipulags Vestfjarða, Sóknaráætlunar Vestfjarða og Ferðamálastefnu ríkisins til 2030. Þau eru mótuð í samráði við sveitarfélög, ferðaþjónustuaðila og aðra hagaðila og taka mið af greiningum á stöðu ferðaþjónustu, árstíðasveiflu og þeim tækifærum sem felast í frekari þróun greinarinnar.
Áhersla er lögð á verkefni sem styðja við markaðsáherslur Vestfjarða, þar á meðal þróun Vestfjarðaleiðarinnar, eflingu heilsársferðaþjónustu og aukið samstarf innan greinarinnar. Verkefnin miða að því að skapa raunhæfar og mælanlegar umbætur sem styrkja Vestfirði sem heildstæðan og sjálfbæran áfangastað.
Vestfjarðastofa leiðir framkvæmd þróunarverkefna í samstarfi við sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir eftir því sem við á. Fyrir hvert verkefni eru skilgreind markmið, ábyrgð og eftirfylgni til að tryggja framgang og gagnsæi.
Hér að neðan má sjá yfirlit yfir þau þróunarverkefni sem skilgreind eru í gildandi áfangastaðaáætlun Vestfjarða.