Fara í efni

Áfangastaðurinn Vestfirðir

Vestfirðir eru elsti hluti Íslands, staðsettir á norðvesturhorni Íslands þar sem þeir mynda afmarkað landsvæði milli Breiðafjarðar í suðri og Húnaflóa í austri. Þeir hafa að geyma tæpa 3000 kílómetra af strandlengju eða um 35% strandlengju Íslands og hefur landfræðileg lega svæðisins, með djúpum fjörðum og fjalllendi, mótað byggðamynstur, atvinnulíf og samgöngur frá örófi alda.

Byggð á Vestfjörðum er dreifð með sjávarþorpum og þéttbýliskjörnum, en Ísafjörður er stærsta byggðalagið og helsti þjónustukjarni svæðisins. Fjarlægðir frá stærstu markaðssvæðum landsins og innan svæðis hafa ráðið miklu um skipulag þjónustu og innviða en lega utan hringsvegs 1 hefur sett Vestfirði úr alfaraleið sem er meðal þess sem markar sérstöðu þeirra.

Vestfirðir búa yfir fjölbreyttum náttúru- og menningarverðmætum. Þar er að finna friðlýst svæði, víðerni og sögustaði sem endurspegla bæði náttúrufar og búsetusögu svæðisins. Þéttofin samfélög heimafólks, fámenni og kyrrð eru meðal þess sem gerir Vestfirði að einstökum áfangastað í hröðum heimi þar sem tengsl hafa rofnað. Fjölskrúðugt fuglalíf, með stærstu sjófuglabyggðum landsins, návígi við sjávarspendýr og aðalheimkynni heimskautarefsins laða að unnendur náttúru- og dýralífs alls staðar frá.

Vestfirðir sem áfangastaður skiptist í fjögur meginsvæði sem hvert um sig hefur sína sérstöðu. Skiptingin endurspeglar landfræðilega legu og þróun byggðar á svæðinu sem tengist samgöngum órofa böndum.

Norðanverðir Vestfirðir

Sveitarfélögin á norðanverðum Vestfjörðum eru Ísafjarðarbær, Bolungarvíkurkaupstaður og Súðavíkurhreppur. Þar er þéttasta byggð Vestfjarða og fjölbreytt þjónusta, með Ísafjörð sem helsta þjónustu- og stjórnsýslukjarna. Atvinnulíf byggir bæði á sterkri sjávarútvegshefð og vaxandi ferðaþjónustu, meðal annars tengdri útivist, viðburðum og komum skemmtiferðaskipa. Fossinn Dynjandi og Bolafjall er meðal helstu segla ferðaþjónustunnar. 

Sunnanverðir Vestfirðir

Í tilliti ferðaþjónustunnar eru sveitarfélögin á Sunnanverðum Vestfjörðum Vesturbyggð og Reykhólahreppur. Byggðin er dreifð og samfélögin smá og helstu atvinnugreinar eru tengdar sjávarútvegi og framleiðslu. Mikil tækifæri eru fólgin í ferðaþjónustu sem hefur aukist síðustu ár með áherslu á náttúruupplifun. Svæðið er þekkt fyrir tilkomumikið strandlandslag og dali sem dreifa sér inn með fjarðalandslaginu. Eyjar Breiðafjarðar, friðlandið í Vatnsfirði og náttúruperlur á borð við Látrabjarg og Rauðasand eru meðal þess sem helst dregur ferðafólk að. 

Strandir

Strandir liggja austast á Vestfjörðum og þar er að finna sveitarfélögin Strandabyggð, Kaldrananeshrepp og Árneshrepp. Strandir eru mikið sauðfjárræktarsvæði og vilja sumir meina að þar megi finna fegursta sauðfé landsins. Svæðið er víðfemt og fámennt og býr að ríkri menningarsögu, meðal annars tengdri göldrum og þjóðtrú og hefur Galdrasýningin á Ströndum um árabil verið einn helsti heimsóknarstaður gesta sem sækja Vestfirði heim. Ferðaþjónusta á Ströndum byggir að stórum hluta á kyrrð, stórfenglegri náttúru og sögutengdri ferðaþjónustu.

Hornstrandir

Friðlandið á Hornströndum eru afskekktasta svæði Íslands og lykilþáttur í ímynd Vestfjarða. Byggð á Hornströndum og í Jökulfjörðum lagðist af upp úr miðri síðustu öld og er þar engin föst búseta. Innviðir eru af afar skornum skammti og aðgengi takmarkast við sjó eða gönguleiðir. Svæðið gegnir mikilvægu hlutverki í náttúruvernd, með gríðarstór fuglabjörg og helstu heimkynnum heimskautarefsins á Íslandi. Hornstrandir eru vinsælt svæði til útivistar, þá sérstaklega gönguferða, þar sem fólk getur bókstaflega tekið sig úr sambandi við umheiminn. 

Stærð, sveitarfélög, íbúar o.fl.

Vestfirðir ná yfir umtalsvert landsvæði miðað við íbúafjölda. Landshlutinn samanstendur af 8 sveitarfélögum og dreifðri byggð þar sem smærri þéttbýliskjarnar gegna lykilhlutverki í þjónustu og atvinnulífi.

Íbúafjöldi 1. janúar 2025 var 7.176 og verður að teljast lítill miðað við flatarmál svæðisins (8.842 km2) og byggð dreifist á fjölda hafna og fjarða. Ísafjörður er stærsti þéttbýliskjarninn, en aðrir byggðarkjarnar gegna mikilvægu hlutverki í sínu nærumhverfi.

Árneshreppur

Árneshreppur

Mannfjöldi: 60
Þéttbýli: Norðurfjörður
Bolungarvík

Bolungarvíkurkaupstaður

Mannfjöldi: 995
Þéttbýli: Bolungarvík
Ísafjörður

Ísafjarðarbær

Mannfjöldi: 3.832
Þéttbýli: Ísafjörður, Hnífsdalur, Flateyri, Suðureyri, Þingeyri
Drangsnes

Kaldrananeshreppur

Mannfjöldi: 115
Þéttbýli: Drangsnes
Reykhólar

Reykhólahreppur

Mannfjöldi: 246
Þéttbýli: Reykhólar
Hólmavík

Strandabyggð

Mannfjöldi: 405
Þéttbýli: Hólmavík
Súðavík

Súðavíkurhreppur

Mannfjöldi: 209
Þéttbýli: Súðavík
Patreksfjörður

Vesturbyggð

Mannfjöldi: 1.314
Þéttbýli: Patreksfjörður, Bíldudalur, Tálknafjörður

Heimild: Hagstofa Íslands, mannfjöldi 1. janúar 2025