Framtíðarsýn og markmið
Vestfirðir eru eftirsóttur áfangastaður árið um kring þar sem náttúra, kyrrð og útivist laða að gesti. Saga, menning og rótgróin samfélög eru kjarninn í góðri upplifun. Fjölbreytt ferðaþjónusta byggir á ábyrgð, gæðum og virðingu – með sérstöðu svæðisins að leiðarljósi.
Framtíðarsýn Vestfjarða er að svæðið verði heilsárs áfangastaður þar sem ferðaþjónusta er rekin í sátt við náttúru og samfélag. Uppbygging og þróun fer fram í samræmi við stefnumörkun svæðisins og landsins. Hún byggir á Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025-2050, Sóknaráætlun Vestfjarða og Ferðamálastefnu ríkisins til 2030, auk aðalskipulags og fjárfestingaáætlana sveitarfélaganna.
Áfangastaðaáætlun Vestfjarða tekur mið af þeim stefnum og aðgerðum sem þar eru settar fram auk þess að horfa til áætlana og aðalskipulags sveitarfélaga . Svæðisskipulag Vestfjarða mótar heildstæða framtíðarsýn fyrir landshlutann til ársins 2050 og leggur grunn að stefnu í atvinnulífi, náttúruvernd og uppbyggingu innviða. Sóknaráætlun Vestfjarða 2025–2029 leggur áherslu á byggðafestu, samlegð menningar og atvinnulífs og eflingu heilsársstarfsemi. Ferðamálastefna ríkisins til 2030 leggur jafnframt áherslu á sjálfbærni, gæði, samhæfingu stjórnsýslu og ábyrga þróun ferðaþjónustu.
Markmið áfangastaðaáætlunar Vestfjarða eru að efla heilsársferðaþjónustu og draga úr árstíðasveiflu, styrkja Vestfjarðaleiðina sem burðarás ferðaþjónustu á svæðinu og tryggja að uppbygging og stýring álags byggi á skipulagi og forsendum svæða. Jafnframt er lögð áhersla á að samhæfa stefnumótun, þróunarverkefni og markaðsstarf og tryggja að ferðaþjónusta styðji við samfélagsauð og byggðafestu í landshlutanum.
Með þessum áherslum fellur áfangastaðaáætlun Vestfjarða að markmiðum ríkisins um sjálfbæra og ábyrga þróun ferðaþjónustu þar sem jafnvægi er á milli nýtingar og verndar náttúru og samfélags.
Tengsl við aðrar áætlanir
Svæðisskipulag Vestfjarða
Vestfirðir geta skarað fram úr sem áfangastaður sem byggir á gæðum, sérstöðu og fjölbreytni. Dýpri tenging, gæði og lengri dvöl eru leiðarljós sem auka virði ferðaþjónustunnar án þess að leggja óþarfa álag á náttúru og samfélag. Vestfirðir eiga að styðja við skipulagðan og sjálfbæran vöxt ferðaþjónustu þar sem sveitarfélög gegna lykilhlutverki.
Í svæðisskipulaginu eru sett fram eftirfarandi markmið um sjálfbæra ferðaþjónustu:
- Efla ferðaþjónustu sem heilsárs atvinnugrein
- Styrkja Vestfjarðaleiðina sem heildstæða og aðlaðandi ferðamannaleið
- Stuðla að sjálfbærri og ábyrgri ferðaþjónustu í sátt við náttúru og samfélag
- Samhæfa þróun, áætlunargerð og markaðssetningu ferðaþjónustu
Áætlunin er jafnframt unnin í samræmi við:
- Sóknaráætlun Vestfjarða
- Ferðamálastefnu ríkisins 2030
- Áætlanir sveitarfélaga