Inngangur
Komur skemmtiferðaskipa til Vestfjarða hafa stóraukist á undanförnum árum og er Ísafjarðarhöfn meðal vinsælustu stoppa á Íslandi. Móttaka skemmtiferðaskipa hefur því orðið æ mikilvægari hluti af ferðaþjónustu svæðisins. Sú þróun skapar tækifæri fyrir atvinnulíf og þjónustu en kallar jafnframt á skýra stefnu og samræmda stjórnun til að tryggja að álag á innviði, náttúru og samfélög sé innan viðráðanlegra marka.
Þróunarverkefnið snýr að því að móta sameiginlegan ramma fyrir móttöku og stýringu skemmtiferðaskipa á Vestfjörðum. Með samræmdri nálgun verður hægt að taka upplýstar ákvarðanir um fjölda skipakoma, dreifingu gesta og þróun þjónustu. Áhersla er lögð á að auka virði hverrar skipakomu og tryggja að þróunin sé í sátt við samfélög og náttúru Vestfjarða.
Markmið
Gerð sameiginlegrar stefnu sem felur í sér skýr viðmið um móttöku skemmtiferðaskipa og dreifingu þeirra um Vestfirði. Stefnan styður við sjálfbæra þróun ferðaþjónustu og ábyrga nýtingu innviða.
Verkefnið miðar að því að:
-
setja sameiginleg viðmið um móttöku skemmtiferðaskipa á Vestfjörðum
- Samræma áætlanir sveitarfélaga og hafna um fjölda skipa og tímasetningar
-
tryggja að móttaka skipa taki mið af getu innviða og þolmörkum svæða
-
stuðla að dreifingu gesta innan svæðis og á milli staða
-
auka virði hverrar skipakomu með sterkari tengingu við þjónustu og upplifanir í landi
-
tryggja að þróun skemmtiferðaskipa sé í sátt við samfélög og náttúru Vestfjarða
Með skýrri stefnu og sameiginlegum viðmiðum verður auðveldara að samræma ákvarðanir og skapa fyrirsjáanlegan ramma fyrir þróun greinarinnar.
Nálgun og framkvæmd
Verkefnið felur í sér greiningu, stefnumótun og samhæfingu milli sveitarfélaga, hafna og annarra hagaðila.
-
Í verkefninu verður unnið að því að safna saman gögnum um skipakomur og farþegafjölda, meta áhrif þeirra á innviði, náttúru og samfélög og móta sameiginleg viðmið um móttöku skipa. Sérstök áhersla verður á dreifingu skipakoma milli hafna og tengingu við upplifanir og þjónustu í landi.
- Sett verða skýr viðmið um landtöku farþega utan hafna og aðra tengda starfsemi með tilliti til öryggis, náttúruverndar og álags á viðkvæm svæði.
- Unnið verður að því að styrkja tengingu skemmtiferðaskipa við þjónustu og upplifanir í landi með það að markmiði að auka verðmætasköpun og jákvæð áhrif á samfélög á Vestfjörðum.
Samstarf og hlutverk
Móttaka og stýring skemmtiferðaskipa byggir á samstarfi sveitarfélaga, hafna, ferðaþjónustuaðila og Vestfjarðastofu.
Hafnir og sveitarfélög bera ábyrgð á skipulagi og móttöku skipa innan sinna marka og gegna lykilhlutverki í ákvarðanatöku um fjölda skipa, tímasetningar og aðstöðu fyrir farþega. Ferðaþjónustuaðilar sjá um afþreyingu og þjónustu í landi og gegna mikilvægu hlutverki í því að tryggja gæði upplifunar og verðmætasköpun fyrir samfélögin.
Vestfjarðastofa vinnur að samhæfingu verkefnisins á svæðisvísu, tryggir upplýsingamiðlun og stuðlar að samstarfi milli hagaðila jafnframt því að tengja verkefnið við aðra þætti áfangastaðaþróunar á Vestfjörðum.
Tengsl við stefnumótun
Verkefnið tekur mið af Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025–2050 þar sem lögð er áhersla á að móta sameiginlega stefnu og viðmið um móttöku skemmtiferðaskipa og tryggja að þróun greinarinnar byggi á gæðum, dreifingu gesta og virðingu fyrir náttúru og samfélagi.
Verkefnið styður einnig við markmið Sóknaráætlunar Vestfjarða um sjálfbæra atvinnuþróun og aukna verðmætasköpun í ferðaþjónustu. Jafnframt fellur það að Ferðamálastefnu ríkisins til 2030 þar sem lögð er áhersla á ábyrga stjórnun áfangastaða, samhæfða stefnumótun og jafnvægi milli nýtingar og verndar.
Með sameiginlegri stefnu og skýrum viðmiðum um móttöku skemmtiferðaskipa verður hægt að þróa þessa grein ferðaþjónustunnar á Vestfjörðum á ábyrgan og sjálfbæran hátt til framtíðar.