Fara í efni

Samskipta- og kynningaráætlun

Áfangastaðaáætlun Vestfjarða er unnin og uppfærð í samræmi við leiðbeiningar um gerð áfangastaðaáætlana og tekur mið af áherslum Ferðamálastefnu ríkisins um samhæfingu og samstarf í stjórnsýslu ferðaþjónustu. Áætlunin byggir jafnframt á stefnum svæðisins, þar á meðal svæðisskipulagi Vestfjarða og Sóknaráætlun Vestfjarða, og er ætlað að styðja við framkvæmd þeirra á sviði ferðaþjónustu.

Vestfjarðastofa / Markaðsstofa Vestfjarða ber ábyrgð á vinnslu áætlunarinnar, samráðsferli og reglulegri uppfærslu hennar. Stýrihópur áfangastaðaáætlunar er skipaður fulltrúum allra sveitarfélaga á Vestfjörðum ásamt fulltrúum hagaðila. Hlutverk hópsins er að leggja línur í þróun ferðaþjónustu á svæðinu, ræða áherslur áætlunarinnar og fylgjast með framvindu hennar. Með þessari verkaskiptingu er tryggt að verkefni og áherslur séu unnin í samræmi við skipulagsáætlanir sveitarfélaga og aðrar stefnumarkandi áætlanir á svæðinu.

Við gerð og endurskoðun áfangastaðaáætlunar er lögð áhersla á samráð við íbúa og hagaðila. Í tengslum við vinnslu áætlunarinnar voru haldnir opnir samráðsfundir á Ísafirði, Hólmavík og Patreksfirði þar sem íbúar, ferðaþjónustuaðilar og aðrir áhugasamir gátu komið á framfæri sjónarmiðum sínum. Auk þess hefur stýrihópur áætlunarinnar fundað reglulega á meðan á vinnslu hennar stendur.

Áfangastaðaáætlunin er lifandi skjal sem uppfært er reglulega. Vestfjarðastofa kallar árlega eftir uppfærslu á uppbyggingarverkefnum frá sveitarfélögum og heldur utan um samantekt og birtingu þeirra. Töluleg gögn og stöðugreining eru jafnframt uppfærð eftir því sem nýjar upplýsingar verða aðgengilegar. Heildarendurskoðun á áætluninni fer fram á fjögurra ára fresti og er hún samræmd við endurskoðun Sóknaráætlunar Vestfjarða.

Að lokinni vinnslu og uppfærslu er áfangastaðaáætlunin send til sveitarfélaga á Vestfjörðum til formlegrar samþykktar. Með því er tryggt að áætlunin hafi skýrt umboð og nýtist sem sameiginlegur grunnur að forgangsröðun verkefna og samstarfi á svæðinu.

Áætlunin er birt á sérstökum vef áfangastaðaáætlunar á heimasíðu Markaðsstofu Vestfjarða þar sem almenningur, ferðaþjónustuaðilar og stjórnvöld geta nálgast upplýsingar um verkefni, áherslur og framvindu þeirra. Verkefni sem skilgreind eru í áfangastaðaáætluninni geta jafnframt fengið aukið vægi við umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða þar sem áætlunin er notuð sem grunnur að forgangsröðun uppbyggingarverkefna.