Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Skapandi tónlistarnámskeið fyrir börn

June18 - 22

Price description

15.000 kr.

Svava Rún Steingrímsdóttir og Katrín Karítas Viðarsdóttir eru nýútskrifaðar úr Skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands og bjóða upp á tónlistarnámskeið fyrir börn þar sem áhersla er lögð á tónlistarleiki, söng, raddanir og keðjusöngva, aðferðir við að semja tónlist og spuna. Markmið námskeiðsins er að efla tónlistar þekkingu barna og kynna þeim fyrir nýjum og skemmtilegum hliðum tónlistarinnar. Námskeiðin verða tvö og standa yfir dagana 18. - 22. júní kl 09:00-12:00 fyrir 5.-10. bekk og 13:00 - 15:00 fyrir 1.- 4. bekk.

Svava Rún stundaði tónlistarnám við Tónlistarskóla Ísafjarðar frá unga aldri. Svava hefur meðal annars lært söng, æft á fiðlu og píanó. Katrín Karítas er fædd og uppalin á Akureyri þar sem hún stundaði nám við fiðlu, píanó og víólu við tónlistarskólann þar. Vinkonurnar Svava og Katrín hafa unnið saman síðustu ár að alls kyns verkefnum á vegum tónlistar með fjölbreyttum hópi fólks, þar á meðal í grunnskólum, í Upptaktinum og einstaklingum í endurhæfingu. 

Það kostar 15.000 á námskeiðið og skráning er á tölvupósti hjá bjarneyingibjorg@gmail.com.