Flýtilyklar
Ísafjörður í Skutulsfirði er forn verslunarstaður, höfuðstaður Vestfjarða og tilheyrir nú hinu sameinaða sveitarfélagi Ísafjarðarbæ. Þrátt fyrir smæð sína hefur Ísafjörður yfir sér ákveðinn stórborgarbrag, enda er þjónustustigið hátt, menningarlífið ríkt og mannlífið fjölbreytt.
Ísafjörður hefur ótal margt að bjóða ferðafólki. Náttúran í kringum bæinn er einstök og þar má finna fjölmargar frábærar göngu- og hjólaleiðir við allra hæfi og ekki er verra að líða um kyrran hafflötinn á kajak. Í Tungudal er golfvöllur og fyrir þá sem leggja leið sína til Ísafjarðar að vetri er rétt að benda á skíðasvæðin í Tungudal og á Seljalandsdal. Sundhöllin á Ísafirði er gömul en vinaleg innilaug með heitum potti og gufubaði. Frá Ísafirði eru reglulegar áætlunarferðir báta yfir í Hornstrandafriðlandið, til eyjarinnar Vigur og víðar. Snæfjallaströnd tilheyrir einnig Ísafjarðarbæ en þar er rekin eina ferðaþjónustan við norðanvert Djúp, í Dalbæ og þar er Snjáfjallasetur með sögusýningar.
Byggðasafnið í Neðstakaupstað, í húsum einokunarverslunarinnar frá 18. öld, þykir eitt af skemmtilegustu söfnum landsins en þar er einnig til húsa Harmonikusafn Ásgeirs Sigurðssonar. Í Gamla sjúkrahúsinu á Eyrartúni er bókasafn, skjalasafn, ljósmyndasafn og metnaðarfullt listasafn. Ganga um gamla bæinn er líka á við bestu heimsókn á safn, ekki síst ef hið ágæta húsakort er með í för. Þá eru reglulega settar upp listasýningar í Gallerý Úthverfu og í Edinborgarhúsinu.
Á hverju ári fara fram metnaðarfullar menningarhátíðir á Ísafirði. Þar ber hæst sjálf rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, sem haldin er um hverja páska. Unnendur íþrótta og útivistar fá líka sitt á Skíðavikunni, Fossavatnsgöngunni og Hlaupahátíð á Vestfjörðum sem fram fer á Ísafirði, Bolungarvík og í Dýrafirði.
Saga Ísafjarðar:
Nafnið Ísafjörður átti forðum við um allt Ísafjarðardjúpið en festist síðan við eyrina í Skutulsfirði sem var helsti verslunarstaðurinn á þessu svæði. Innst í Ísafjarðardjúpi er hins vegar fjörður sem ber nafnið Ísafjörður og veldur þetta gjarnan nokkrum heilabrotum hjá erlendu ferðafólki.
Á Eyri í Skutulsfirði - Ísafirði - hefur verið stunduð verslun öldum saman en strax á 16. öld komu kaupmenn frá Hamborg sér upp aðstöðu á eyrinni. Með tilkomu dönsku einokunarverslunarinnar var eyrin svo fest enn frekar í sessi sem miðstöð fiskveiða og verslunar.
Eftir að einokuninni var aflétt störfuðu mörg gróskumikil útgerðar- og verslunarfélög á Ísafirði. Þeirra þekktast er án efa Ásgeirsverslun sem var langöflugasta einkafyrirtæki landsins á sínum tíma. Fyrirtækið var með umsvifamikla útgerð, keypti fyrstu gufuskip sem Íslendingar eignuðust, hélt uppi farþega- og vörusiglingum um Ísafjarðardjúp og sigldi með afurðir sínar beint frá Ísafirði til markaðslandanna við Miðjarðarhaf. Ásgeirsverslun stóð fyrir ýmsum öðrum nýjungum svo sem fyrsta talsíma á milli húsa á Íslandi.
Saltfiskur varð verðmætasta útflutningsafurð Íslendinga á 19. öld og vinnsla hans varð undirstaða atvinnulífs á Ísafirði. Um aldamótin 1900 var Ísafjörður næst stærsti bær landsins og í fararbroddi í mörgu er sneri að útgerð og sjávarútvegi. Til Ísafjarðar má m.a. rekja upphaf vélvæðingar fiskiskipaflotans sem og upphaf rækjuveiða við Ísland.
Samhliða atvinnulífinu blómstraði einnig menningin í bænum. Tónlistin á sér þar ríka hefð og var Tónlistarskóli Ísafjarðar fyrsti tónlistarskóli landsins. Bókasafn var stofnað þegar árið 1889 og um tíma áttu Ísfirðingar eitt allra glæsilegasta leikhús landsins, Templarahúsið, sem brann árið 1930.

400
Áhugaverðir staðir og afþreying
Ísafjörður - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands