Flýtilyklar
Gisting

Ferðaþjónusta á Vestfjörðum hefur farið vaxið þó nokkuð á undanförnum árum og gistimöguleikum að sama skapi fjölgað. Fjölbreytt gisting er í boði og eykst framboðið á ári hverju, hvort sem óskað er eftir hótelgistingu, íbúðum, svefnpokaplássi eða öðru, þá má finna eitthvað við sitt hæfi.
Svefnpokagisting
Mörg gistiheimili, einfaldari hótel, farfuglaheimili og aðilar sem reka bændagistingu, bjóða upp á svefnpokapláss, en það er ódýrara en upp á búið rúm.
Heimagisting
Víðast hvar á Vestfjörðum er að finna einkarekin gistiheimili, eru þau oftast minni og persónulegri en hótel og yfirleitt ódýrari.
Farfuglaheimili og hostel
Einföld og ódýr gisting, sem hentar þeim sem ekki vilja eyða of miklu í gistingu. Farfuglaheimili eru sérstaklega vinsæl hjá yngra fólki sem kýs einfaldan ferðamáta.
Bændagisting
Gisting á bóndabæ er alveg sérstök upplifun og fyrir þá sem vilja reyna eitthvað nýtt og komast nær fólkinu í landinu er bændagisting frábær kostur.
Íbúðir
Íbúðagisting er hentugur valkostur fyrir þá sem gjarnan vilja vera út af fyrir sig, elda sjálfir og komast í nánari snertingu við heimamenn.Hægt er að velja úr íbúðagistingu í ýmsum verðflokkum.
Gistiheimili
Gistiheimili hafa ákveðinn sjarma, eru lítil og persónuleg.
Sumarhús
Það er notalegt að gista í sumarhúsi og slík gisting er sérstaklega hentug þegar fjölskyldur og stærri hópar ferðast saman.
Tjaldsvæði
Tjaldsvæði má finna víðsvegar um Vestfirði, við þéttbýliskjarna sem og fáfarnari stöðum.
Hótel
Á Vestfjörðum má finna þó nokkur hótel í ýmsum verð- og gæðaflokkum. Flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.