Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

The Factory listasýning : Undirheimar vatnsins

11. júní - 11. september

Upplýsingar um verð

Ókeypis
The Factory
 
Ætlunin er að (endur)skapa The Factory, yfirgripsmikla listasýningu í hinu afskekkta þorpi Djúpavík. Með því að tengja saman horfinn sjávarútveg og samtímalist mun gamla síldarverksmiðjan í Djúpavík fá aðlaðandi og nútímalegri blæ og persónugerast í löngu liðnum tíma fólksins sem lifði þar og starfaði. Listaverkin vísa til rýmisins og skynjunar á umhverfinu í Djúpavík og á Íslandi í heild sinni og leitast við að skapa rými fyrir andstæður, fortíð og nútíð - stað til að anda og leyfa sér að vera til.

Undirheimar vatnsins

Vatnið í okkar skilningi: Hafið, fossinn, regndroparnir, vatnaniðurinn, rakinn, snjórinn. Það má finna allar þessar birtingamyndir vatns inní og í kringum gömlu síldarverskmiðjuna í Djúpavík. Það safnast fyrir í jarðveginum undir okkur, seytlar niður veggi og liggur ofan á þakinu. Ímyndaðu þér núna, sama vatnið undir hvaða yfirborði sem er, sama vatnið og er inní líkama þínum. Á ferðalagi sínu tekur vatnið stöðugum breytingum, það myndar nýjar samsetningar með aðra þýðingu. Efnisþættir vatns. Hvað hafa þeir að geyma? Hvert fara þeir í raun og veru?

Með þemanu vatn og haf, dregur sjöunda sýning The Factory að sér mennskar og ómennskar verur sem lifa bæði ofan og neðan sjávar. Listaverkin eru túlkuð á vatnskenndan og glitrandi hátt - umvafin þunglamalegri og myrkri steypu verksmiðjunarinnar.
 
Haldið af Hótel Djúpavík
Sýningarstjóri - Emilie Dalum
Hafa samband - emilie@thefactory.is
 
 
Listamenn:
 
Aniara Omann (DK)
Alexis Brancaz (FR)
Björn Jónsson (IS)
Christalena Hughmanick (US)
Christine Nguyen (US)
Halla Birgisdóttir (IS)
Heidi Zenisek (US)
Heinz Kasper (AT)
Iða Brá Ingadóttir (IS)
Kate Robinson (US)
Melkorka Þorkelsdóttir (IS)
Sarah Finkle (US)
Simon Lambrey (FR)
 
Styrktaraðilar: Hótel Djúpavík, Vestfjarðastofa, Sóknaráætlun Vestfjarða og Byggðastofnun.

Staðsetning

The Old Herring Factory in Djúpavík

Sími