Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

The Factory Listasýning

12. júní - 12. september

Upplýsingar um verð

Ókeypis
Ætlunin er að (endur)skapa, The Factory, listasýningu, með því að sameina hrunin iðnað og nútímalist. Um leið er gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpuvík gefið nýtt líf í hinum afskekkta bæ. Innan veggja gömlu verksmiðjunnar munu andstæður verða til og um leið sameinast. Þannig munu listaverkin bera með sér rými og umhverfi skynjunar af Djúpuvík og alls Íslands.
 
Opið daglega 10.00-18.00
12 júní til 12 september 2021
Aðgangur ókeypis
 
Árið 2019, færðum við út kvíarnar og bættum við sýningarrými á Vestfjörðum. Balinn / The Tub Art Space er gamalt hús á Þingeyri, og þar verður haldin listasýning sumarið 2021. Það er margt sameiginlegt með verksmiðjunni í Djúpuvík og gamla húsinu á Þingeyri: þau eru yfirgefin og í niðurníðslu en um leið hrá og raunveruleg. Hvort sem um ræðir síldarbrælu eða reykjarsvælu af ný steiktum kleinum þá má segja að hversdagslíf þeirra sem hófust við í byggingunum sé umritað í veggi og gólf húsana. Okkar hugmynd er að tengja þessa fjarlægu vestfirsku staði og gefa þeim ný hlutverk.
 
Brekkugata 8, 470 Þingeyri
Opið daglega frá mið júní til mið september 2021
Aðgangur ókeypis
 
Facebook: /thefactorydjupavik
Instagram: #djupavikart
Vef: djupavik.is
 
Myndlistamenn:
- Cymene Howe & Dominic Boyer
- Zoé Dubus
- Jasa Baka // Zuzu Knew
- Helen Cova
- Lilý Erla Adamsdóttir
- Erika Lindsay & group of architect students from University of Detroit Mercy School of Architecture
- Ragnheiður Harpa Leifsdóttir
- Jana Jano & Claudia Grevsmuehl
- Jaime Ekkens
- Sébastien Nouat
- Janine Hinrichs
- Martin Cox
 
The Tub / Balinn á Þingeyri:
- Guðbjörg Lind Jónsdóttir, Jean Larson & Ásthildur Jónsdóttir
 
Sýningarstjóri & verkefnisstjóri: Emilie Dalum

 

Staðsetning

The Old Herring Factory in Djúpavík and Balinn / The Tub Art Space in Þingeyri

Sími