Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Gullkistan Vestfirðir - Markaðsdagur í gróðurhúsinu Moshlíð

14. júní kl. 14:00-16:00

Markaðsdagur á Barðaströnd sunnudaginn 14. júní, klukkan 14-16. Nú er allt í blóma og framleiðendur í sólskinsskapi taka vel á móti gestum sínum eins og þeim er lagið. Fylgist með á samfélagsmiðlum og hjartanlega velkomin í sveitina við sæinn breiða, Komið og kíkið í Gullkistuna í gróðurhúsinu Moshlíð.

Framleiðendur sem verða á markaðnum:

Brjánslækjarbúið
Móra
Laufey heimavinnsla
Baddýjar Guðbjarts prjón
Þorrafiskur frá Suðureyri
Gróðurhúsið í Moshlíð

GPS punktar

N65° 30' 40.382" W23° 11' 44.316"