Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

KYNNINGARFUNDIR UM GERÐ STEFNUMARKANDI STJÓRNUNARÁÆTLANA

Stjórnstöð ferðamála og Ferðamálastofa boða til 14 kynningarfunda um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (Destination Management Plans-DMP) um landið.

Á fundunum munu fulltrúar Ferðamálastofu og Stjórnstöðvar ferðamála kynna verkþætti og tímalínu verkefnisins auk þess sem breski ráðgjafinn Tom Buncle mun fara ítarlega yfir eðli, markmið og tilgang slíkra verkefna og hvernig þau geta nýst inn 

í framtíðarskipulag og þróun svæða. Hagaðilar DMP verkefna eru breiður hópur s.s. sveitarfélög, markaðsstofur, atvinnuþróunarfélög, ferðaþjónar, ferðaklasar, upplýsingamiðstöðvar, aðrir þjónustuaðilar, öryggis- og viðbragðsaðilar, íbúar o.fl.

Nánari upplýsingar í PDF-skjali

Fundirnir verða sem hér segir:

Patreksfjörður - Mánudagurinn 19. september - kl. 09:00
Suðureyri - Mánudagurinn 19. september - kl. 14:00 (á aðalfundi Ferðamálasamtaka Vestfjarða)
Hólmavík - Þriðjudagurinn 20. september - kl. 09:00

Hlekkur á skráningarblað er hér að neðan. Vinsamlegast skráið þátttöku í það minnsta 3 virkum dögum fyrir fund á ykkar svæði. Hver fundur er áætlaður 2-3 tímar. Skráðir þátttakendur fá sendar ítarlegri upplýsingar um dagskrá hvers fundar og nánari fundarstað.

Skráning á fundina.