Flýtilyklar
Hótel Flókalundur
Hótel Flókalundur er lítið fjölskyldurekið sumarhótel í Vatnsfirði á sunnanverðum Vestfjörðum, um það bil 6 km frá Brjánslæk þar sem ferjan Baldur kemur að landi. Hótelið er miðsvæðis á Vestfjörðum og stutt í margar af helstu náttúruperlum landsfjórðungsins.
Vatnsfjörður er friðland og þekktur fyrir náttúrufegurð og fjölbreytt lífríki. Þar er mikil veðursæld og því gaman að njóta útiveru í gróðurríkum firðinum.
Sendu okkur tölvupóst til að fá nánari upplýsingar.
Hótel Flókalundur er opinn
frá 20. maí - 15. september
Gisting
Hótel Flókalundur er heimilislegt sveitahótel með 27 notalegum eins og tveggja manna herbergjum. Öll herbergin eru með sér baði (wc/sturta), auk þess sem rúmgóð setustofa með sjónvarpi er á hótelinu. Hjólastólaaðgengi er í einu af herbergjunum.
Veitingar
Veitingasalur er opinn frá 7:30 til 23:00. Morgunverðarhlaðborð er frá 7:30 til 10:00 og í hádegi er boðið upp á rétt dagsins ásamt smáréttarseðli sem hægt er að panta af allan daginn. Hægt er að fá mat af kvöldverðarmatseðli og smáréttarseðli til 21:00. Barinn er opinn til 23:00.
Bensínstöð og verslun
Hægt er að kaupa eldsneyti, olívörur og flest annað smálegt sem bíllinn þarfnast. Verslunin er opin alla daga frá 11:00-18:00 þar sem fæst matvara, kol, gas ásamt því helsta sem þörf er á í ferðalagið.
Tjaldsvæði
Tjaldsvæði er stutt frá hótelinu þar er góð aðstaða fyrir tjöld, tjaldvagna og fellihýsi. Hægt er að komast í rafmagn og í þjónustuhúsi eru salerni, heitt og kalt vatn, sturtur og aðstaða fyrir uppvask.
Vatnsfirði
Hótel Flókalundur - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands