Gvendarlaug hins góða
Sundlaugin á sér merka sögu en hún var byggð á fimmta áratug síðustu aldar með sameiginlegu átaki bænda úr hreppnum. Í laugina rennur heitt uppsprettuvatn og er stöðugt rennsli í gegnum laugina. Því er afskaplega litlum hreinsiefnum bætt í vatnið.
Laugin er opin alla daga frá 08:00 til 22:00.