Price description
Ómar Smári Kristinsson sýnir verkið „Fagra ferðamannakortið af Íslandi.“ í sundlauginni á Suðureyri
Ómar Smári (1976) er myndlistarmaður og bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar árið 2019. Hann hefur unnið með teikningar og bókaútgáfu og stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og í Hannover í Þýskalandi. Kortin hans má sjá víðsvegar um landið, sjálfur fer hann víða og hefur ritað 10 bækur um hjólaleiðir.
Eftir að hafa teiknað tugi korta af stærri og smærri stöðum landsins er loksins komið kort eftir Smára sem sýnir landið allt. Þetta er ferðamannakort sem sýnir helstu áfangastaðina. En landið allt er fallegt – líka landsvæðin á milli áfangastaðanna.
Verkefnið er styrkt af Þjóðminjasafni Íslands og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu í tilefni þess að sundlaugamenning á Íslandi var staðfest á lista UNESCO.