Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Marsibil G. Kristjánsdóttir sýnir verkið „Sundverur“ í sundlauginni á Þingeyri -SUNDLAUGAMENNING

May 29 - June 1

Price description

Frítt

Marsibil G. Kristjánsdóttir sýnir verkið „Sundverur“ í sundlauginni á Þingeyri

 

Marsibil er sjálfstætt starfandi listamaður og býr og starfar á Þingeyri í Ísafjarðarbæ, hún er Bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar árið 2009. Hún hefur unnið mikið fyrir leikhús og er annar leikhústjóri Kómedíuleikhússins. Marsibil hefur haldið fjölda myndlistarsýninga og verkin verið mjög fjölbreytt, en síðustu ár hafa skeljaverur verið aðal listformið, þar sem hún klæðir gamlar postulínsdúkkur í skelja, kufunga og sandfatnað.

 

Verkefnið er styrkt af Þjóðminjasafni Íslands og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu í tilefni þess að sundlaugamenning á Íslandi var staðfest á lista UNESCO.