Price description
📍 Sundhöll Ísafjarðar
📅 Sunnudagur 31. maí
🕒 Kl. 10:00
Jóngunnar Biering Margeirsson flytur lög eftir Vilberg V. Vilbergsson (Villa Valla) og Samúel J. Einarsson (Samma rakara) í Sundhöllinni á Ísafirði.
Sundlaugin verður sérstaklega upphituð fyrir ungabörn og verður Signý Þöll Kristinsdóttir á staðnum með ungbarnasund.
Fólk er hjartanlega velkomið að koma og njóta tónlistarinnar, en við biðjum gesti um að sýna foreldrum og ungbörnunum tillitssemi og leyfa þeim að njóta aðstöðunnar í ró og næði.
-
Signý Þöll Kristinsdóttir er iðjuþjálfi og ungbarnasundkennari. Hún hefur frá 2014 kennt ungbarnasund á Ísafirði í sundlaug endurhæfingardeildar HVEST. Henni finnst ómissandi fyrir börn að fá tækifæri til að hreyfa sig í vatni og fyrir foreldra að upplifa öryggi með börnum sínum í vatni.
Jóngunnar Biering Margeirsson er tónlistarmaður sem starfar víða innan tónlistarlífs, meðal annars sem kórstjóri, organisti, undirleikari og tónskáld. Hann hefur tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum og leggur áherslu á að sinna tónlistarþörfum nærsamfélagsins.
Vilberg Valdal Vilbergsson (1930–2024), þekktur sem Villi Valli, var tónlistarmaður og heiðursborgari Ísafjarðarbæjar. Hann var útnefndur bæjarlistamaður árið 2001 og tók virkan þátt í tónlistarlífi svæðisins í áratugi, meðal annars sem stjórnandi Lúðrasveitar Ísafjarðar og þátttakandi í fjölmörgum hljómsveitum.
Samúel J. Einarsson (1940–2022), oft kallaður Sammi rakari, var þekktur tónlistarmaður á Ísafirði. Hann starfaði með fjölmörgum hljómsveitum, þar á meðal BG flokknum sem naut vinsælda á landsvísu. Samúel gaf út tónlist undir eigin nafni og var virkur þátttakandi í menningarlífi svæðisins.
Google Calendar - Event details
Verkefnið er styrkt af Þjóðminjasafni Íslands og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu í tilefni þess að sundlaugamenning á Íslandi var staðfest á lista UNESCO.