Price description
Frítt
📅 Mánudagurinn 1. júní kl. 10:00
📍 Silfurtorg
Í tilefni af 30 ára afmæli Ísafjarðarbæjar verður stutt hátíðarávarp á Silfurtorgi, að því loknu flytja nemendur Grunnskólans á Ísafirði afmælissöng.
________________________________________________________________________________
Viðburðurinn er hluti af dagskrá 30 ÁRA AFMÆLI ÍSAFJARÐARBÆJAR | 29. maí – 1. júní 2026
Ísafjarðarbær fagnar 30 árum frá sameiningu sveitarfélagsins og af því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta afmælisdagskrá fyrir íbúa og gesti dagana 29. maí – 1. júní 2026.
Frítt verður í allar sundlaugar sveitarfélagsins alla dagana og víða verður boðið upp á tónlist, opið hús, bíósýningar, fjölskylduviðburði og menningu.